17/05/2018

Verkís leitar að útibússtjóra

Atvinna auglýsing
Atvinna auglýsing

Við leitum að reyndum verkfræðingi eða tæknifræðingi í stöðu útibússtjóra starfsstöðvar Verkís á Akureyri. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf fyrir metnaðarfullan einstakling.

Hlutverk og ábyrgð

  • Almennur rekstur starfsstöðvar
  • Markaðsmál, verkefnaöflun og tilboðsgerð
  • Starfsmannastjórnun
  • Áætlanagerð og skipulagning verkefnavinnu
  • Verkefnastjórnun

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Verkfræðingur eða tæknifræðingur
  • Góðir stjórnunar- , samskipta- og skipulagshæfileikar
  • Reynsla af verkefnastjórnun
  • Gott val á íslensku og ensku

Verkís er öflug og framsækið ráðgjafarfyrirtæki sem býður fyrsta flokks þjónustu á öllum sviðum verkfræði. Hjá Verkís starfa yfir 300 manns að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum á Íslandi og erlendis.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um á ráðningarvef Verkís (umsokn.verkis.is). Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað. Við hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 31. maí.

Nánari upplýsingar veita: 
Ari Guðmundsson, sviðsstjóri starfsstöðvasviðs, arg@verkis.is
Elín Greta Stefánsdóttir, mannauðsstjóri, egs@verkis.is

Atvinna auglýsing
Atvinna auglýsing