18/12/2019

Verkís sér um verkfræðihönnun endurbyggingar Vesturhúss OR

Vesturhús OR verkfræðihönnun
Vesturhús OR verkfræðihönnun

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur samþykkt að bjóða út framkvæmdir við endurbyggingu hluta skrifstofuhúsnæðis fyrirtækisins við Bæjarháls í Reykjavík.

Verkís sér um alla verkfræðihönnun á endurbyggingu hluta skrifstofuhúsnæðis Orkuveitu Reykjavíkur en Hornsteinar eru arkitektar hússins. Endurbyggja þarf útveggi hússins eftir að í ljós kom árið 2017 að það var mikið skemmt af raka.

Húsið mun taka nokkrum útlitsbreytingum. Helsta breytingin er sú að útveggir hússins verða réttir af en þrír af fjórum útveggjum hins skemmda Vesturhúss slúta nú fram yfir sig. Það þýðir að gólfflötur neðri hæða mun stækka en efri hæða minnka. Heildarflatarmál verður svipað og fyrir breytingar.

Við hönnun endurbyggingar hússins var byggt á þessum grundvallarsjónarmiðum:

  • Viðurkenndar lausnir og útfærslur
  • Hagkvæmni í byggingu og rekstri
  • Byggt á núverandi burðarkerfi
  • Nýtt yfirbragð, hógvært og lágstemmt
  • Sveigjanleg og heilsusamleg innanrými

Frétt Orkuveitu Reykjavíkur: OR býður út endurbyggingu Vesturhúss við Bæjarháls

Hér að neðan má sjá myndband af því hvernig húsið mun líta út

https://vimeo.com/380004672

Vesturhús OR verkfræðihönnun
Vesturhús OR verkfræðihönnun