Verkís tók þátt í ársfundi Grænvangs
Á ársfundi Grænvangs 2021 var fjallað um grunninn sem íslensk stjórnvöld, íslenskt atvinnulíf og Grænvangur hafa lagt að loftslagsvænni framtíð og mikilvægi þess að halda áfram á sömu braut til að skapa sjálfbæra framtíð með góðri samvinnu.
Íslandsstofa og Grænvangur vinna saman að því að kynna Ísland sem leiðandi land á sviði sjálfbærni í öflugu samstarfi við íslensku sendiráðin og íslensk fyrirtæki.
Grænvangur er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftlagsmál og grænar lausnir og sinnir kynningarstarfi á framlagi Íslands til loftlagsmála á erlendri grundu. Auk þess tekur Grænvangur virkan þátt í að tengja íslenskt atvinnulíf og stjórnvöld saman til að ná sameiginlegu markmiði um kolefnishlutleysi 2040.
Á ársfundinum sögðu íslenskar verkfræðistofur frá verkefnum sem þær hafa komið að á heimsvísu. Verkís sagði frá mikilvægu jarðhitaverkefni í Afríku sem hefur bein áhrif á sjálfbæra þróun á heimsvísu.
Carine Chatenay, byggingarverkfræðingur og viðskiptastjóri á Orkusviði Verkís, flutti erindi fyrir hönd Verkís. Það bar yfirskriftina Um mikilvægi sameiginlegs markaðsstarfs: Örsaga um Tulu Moye í Eþíópíu. Hér er hægt að horfa á ársfund Grænvangs. Erindi Carine hefst á mínútu 1:29:56.
Frétt á heimasíðu Grænvangs um ársfundinn.
Grænvangur hefur umsjón með gerð Loftslagsáætlanar atvinnulífsins þar sem íslenskt atvinnulíf setur fram heildstæða yfirsýn yfir markmið hverrar atvinnugreinar og hvernig megi auðvelda atvinnulífinu að ná markmiði um kolefnishlutleysi.