29/01/2021

Vilt þú vinna hjá Verkís í sumar?

Sumarstörf Verkís
Sumarstörf Verkís

Við óskum eftir framtakssömum og metnaðarfullum háskólanemum til að starfa með okkur í sumar. Við bjóðum skemmtilega og krefjandi vinnu við fjölbreytt og spennandi verkefni sem tengjast verkfræðistörfum.

Sumarstarf hjá Verkís eru góður undirbúningur fyrir verðandi verkfræðinga og þau sem hafa áhuga á að vinna við fjölbreytt störf tengd verkfræði í framtíðinni. Sumarstarfsfólk okkar fær leiðbeinanda (mentor) sm er því innan handar í verkefnum sumarsins.

Verkís er öflugt og framsækið fyrirtæki sem býður fyrsta flokks þjónustu á öllum sviðum verkfræði. Við leggjum áherslu á sterka liðsheild sem býr yfir mikilli þekkingu og reynslu við að takast á við krefjandi verkefni. Við tryggjum starfsfólki góðan og eftirsóknarverðan vinnustað þar sem hver og einn fær að nýta hæfileika sína og þekkingu sem best.

Við tökum á móti umsóknum til 10. mars 2021. Mikilvægt er að láta ferilskrá og einkunnir úr námi fylgja með umsókninni. Öllum umsóknum verður svarað.

Ráðningarvefur Verkís

Sumarstörf Verkís
Sumarstörf Verkís