Skip to content

Verkefni

Flugvöllur í Ilulissat

Unnið er að stækkun flugvallarins í Ilulissat á Grænlandi.

Verkís hannar undirstöður fyrir nýja flugstöðvarbyggingu í Ilulissat á Grænlandi ásamt því að veita aðra ráðgjöf til verktakans.



Yfirlit verkefnis

Unnið er að stækkun flugvallarins í Ilulissat á Grænlandi. Flugbraut vallarins verður lengd úr 845 metrum í 2200 metra og þremur byggingum bætt við: flugstöð, þjónustubyggingu og flugturni. Eftir stækkun munu þotur geta lent á flugvellinum.

Gert er ráð fyrir mikilli uppbyggingu á svæðinu næstu árin í kringum ferðamannaiðnaðinn. Landslagið á þessum slóðum er stórfenglegt og þar er m.a. Ísfjörðurinn þar sem hægt er að sjá risavaxna ísjaka og Grænlandsjökul brotna.

Stækkun flugvallanna í Ilulissat og Nuk bætir samgöngutengingar í landinu. Beinu flugi mun fjölga og hægt verður að draga úr kostnaði, ferðatíma og koltvísýrings með færri innanlandsferðum á Grænlandi.

Verkís er saman með verktaka í alútboði ásamt fleiri ráðgjöfum. Verkís sá um að hanna  undirstöður fyrir flugstöðvarbygginguna, var ráðgefandi fyrir verktakann varðandi ýmis atriði sem tengjast burðarþoli, yfirfer hönnunargögn ráðgjafa frá framleiðendum, sá um samantekt á hönnunargögnum annarra ráðgjafa vegna hönnun burðarþols fyrir allar þrjár byggingarnar og gerð hönnunarskýrslu fyrir allar þrjár byggingarnar.

2200m

Lengd flugbrautar



3

Nýjar byggingar



Áskorunin

Að stækka flugvöllinn í Ilulissat þannig að hann geti tekið á móti þotum og jafnframt styrkja samgöngutengingar Grænlands. Verkefnið þarf að taka mið af krefjandi náttúrulegum aðstæðum og umfangsmikilli uppbyggingu á svæðinu, meðal annars vegna vaxandi ferðamannaiðnaðar.

Lausnin okkar

Verkís tekur þátt í alútboði með verktaka og öðrum ráðgjöfum. Verkís hannar undirstöður nýrrar flugstöðvarbyggingar og veitir ráðgjöf um burðarþol. Þá yfirfer Verkís hönnunargögn frá framleiðendum, samræmir hönnunargögn annarra ráðgjafa vegna burðarþols allra þriggja bygginganna og útbýr hönnunarskýrslu fyrir verkefnið.

Niðurstaðan

Stækkun flugvallarins lengir flugbrautina í 2.200 metra og gerir þotum kleift að lenda í Ilulissat. Verkefnið mun bæta samgöngutengingar innan Grænlands, fjölga beinum flugtengingum og stuðla að minni ferðatíma, lægri ferðakostnaði og minni þörf fyrir innanlandsflug.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Ilulissat, Grænland


Stærð:


2.200 metrar


Verktími:


2020 –   


Þjónusta Verkís





Heimsmarkmið