BODØ SUNDHÖLL
Bergen, Noregi
Verkís vinnur að fullnaðarhönnun og gerð útboðsgagna. Verkís hefur áður unnið frum- og forhönnun vegna sundlaugarinnar.
Stærðir: 4.200 m² |
Verktími: 2020 - |
Almennt um verkefnið:
Bodø sundhöllin í Bergen í Noregi er 4.200 m² á tveimur hæðum og er viðbygging við núverandi sundhöll sem nefnist Norlandsbadet. Um er að ræða framsækna, umhverfisvæna og nútímalega sundhöll með 8 brauta 25m keppnislaug (25x21m). Fyrir utan keppnislaugina eru í sundhöllinni áhorfendastúka, búningsklefar, veitingaaðstaða og aðstaða til funda o.fl. fyrir starfsfólk og sundfélag staðarins.
Hlutverk Verkís er almenn verkefnisstjórn, gerð kostnaðaráætlana, hönnun burðarvirkja, fráveitu- hreinlætis- og hitakerfa, sundlaugakerfa, loftræsikerfa, raf- og smáspennukerfa, lýsingar, stýrikerfa, brunahönnun, hljóðvistarhönnun, orkuöflun, orkureikningar, jarðtækni og umsjónarmaður BIM og BREEAM.
Verkefnið er unnið í samvinnu við OP-Verkís í Noregi og Terje Grønmo arkitekta.