Skessan
FH, Hafnarfjörður
Verkís sá um fullnaðarhönnun verksins.
Stærðir: 8.500 m2 |
Verktími: 2017 - 2019 |
Almennt um verkefnið:
Í Skessunni er fótboltavöllur í fullri stærð og gert er ráð fyrir áhorfendasvæði fyrir 400 manns auk þess að lágbygging er vestan við húsið. Sjálft knatthúsið er staðlað dúkklætt stálgrindarhús á steyptum undirstöðum. Húsið er óupphitað með Fifa Quality Pro gervigrasi með vökvunarkerfi. Undirstöður knatthúss og anddyrisbyggingar eru steyptar.
Veggir í knatthúsi eru steyptir upp í 2,5 m hæð þar sem tekur við burðarvirki úr stáli. Þak knatthúss er klætt PVC húðuðum og akrýllökkuðum polyesterdúk. Lágbyggingin er einangruð. Húsið er á einni hæð þar sem gengið er inn í anddyri hússins að vestanverðu. Í vesturhluta hússins eru búningsklefar, salernisaðstaða, söluaðstaða, geymslur og inntaksrými.
Grunnflötur byggingarinnar er um 8.500 m2.