Verkefni

Sky Lagoon

Sky Lagoon er glæsilegur baðstaður með heitu lóni við sjóinn og einstöku útsýni á ysta odda Kársness í Kópavogi.

Um er að ræða eina af stærstu framkvæmdum í ferðaþjónustu síðustu ára og hefur lónið notið gríðarlegra vinsælda síðan það var opnað í lok apríl árið 2021.

Nánar um verkefnið

Sky Lagoon er ætlað að upphefja íslenska baðmenningu, byggingarsögu og náttúru. Við byggingu lónsins var meðal annars notast við svokallaða kömbruhleðslu, sem víða mátti sjá hér á landi á árum áður. Baðlónið er með sjötíu metra löngum óendanleikakanti sem gefur þá tilfinningu að himinn og haf renni saman þegar horft er út úr lóninu.

Verkís veitti margvíslega þjónustu við byggingu lónsins og sá um hönnun laugakerfis baðlónsins, hitaveituinntaks og hitunar lóns og varmaendurvinnslu. Verkís sá einnig um brunahönnun og ráðgjöf við samræmingu og uppsetningu laugarkerfis, lagna-, dælu- og hreinsibúnaðar.

Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:

Kársnesið í Kópavogi

Stærð:

3 hektarar

Verktími:

2019-2021

 

Heimsmarkmið