Skip to content

Verkefni

Sjóböð á Húsavík

Fyrsta skóflustungan af svæðinu var tekin árið 2016.

Síðan þá hefur risið 600m² þjónustubygging og útisvæði um 500m².



Yfirlit verkefnis

Sjóböðin á Húsavík, GeoSea, eru einstakur baðstaður þar sem náttúrulegt jarðhitavatn, sjór og útsýni yfir Skjálfandaflóa mynda grunn að upplifun gesta. Fyrsta skóflustungan að verkefninu var tekin árið 2016 og síðan hefur risið um 600 m² þjónustubygging ásamt um 500 m² útisvæði.

Aðstöðubyggingin er að stórum hluta niðurgrafin til að fella hana sem best inn í landslagið. Baðlaugarnar eru staðsettar þannig að gestir njóta tengsla við náttúruna og sjávarumhverfið á meðan náttúrulegt vatn er nýtt í baðlaugakerfinu.

Sérstaða verkefnisins felst meðal annars í nýtingu vatns úr þremur borholum í nágrenninu. Hluti vatnsins er saltur og er borholuvatninu blandað saman á staðnum. Hitastigi blandaða vatnsins er síðan stýrt áður en því er leitt í laugarnar, þar sem viðmiðunarhitastig er um 38–39°C.

Verkís sá um alla verkfræðihönnun og ráðgjöf verkefnisins auk annarrar vinnu á verktíma. Þar með kom Verkís að tæknilegri útfærslu verkefnisins frá hönnun og undirbúningi til framkvæmdar.

600m²

Þjónustubygging



500m²

Útisvæði



3

Borholur

Áskorunin

Megináskorunin var að skapa baðstað sem nýtti sérstöðu náttúrulegs vatns á svæðinu og félli jafnframt vel að landslaginu. Sérstaklega þurfti að útfæra lausn fyrir blöndun vatns úr ólíkum borholum, þar sem bæði ferskt og salt vatn kemur við sögu, og tryggja rétt hitastig vatnsins þegar það berst í laugarnar.

Jafnframt þurfti að tryggja nægjanlegt vatnsrennsli til að viðhalda gæðum baðvatnsins án hefðbundinnar hreinsunar. Það kallaði á nákvæma hönnun á vatnsflæði, innrennsli og yfirfalli úr laugunum.

Lausnin okkar

Verkís hannaði og útfærði verkfræðilega innviði verkefnisins með náttúrulega eiginleika vatnsins að leiðarljósi. Vatni úr þremur borholum er blandað saman á staðnum og hitastýrðu vatni síðan dreift í laugakerfin eftir þörfum.

Heildarinnrennsli í kerfið er um 35 l/s. Vatnið rennur á milli lauga, yfir barma þeirra og þaðan eftir náttúrulegum farvegi út í sjó. Með þessu mikla gegnumstreymi endurnýjast vatnið stöðugt og er ekki gert ráð fyrir sérstakri hreinsun á baðvatninu.

Við hönnun þjónustubyggingarinnar var jafnframt lögð áhersla á að fella mannvirkið inn í landslagið. Byggingin er að stórum hluta niðurgrafin og dregur þannig úr sjónrænum áhrifum hennar á umhverfið.

Niðurstaðan

Sjóböðin á Húsavík eru sérstaða í íslenskri baðmenningu þar sem náttúrulegt vatn, landslag og hönnun mynda eina heild. Verkefnið nýtir náttúrulegt innstreymi úr borholum til að skapa stöðugt flæði í laugakerfinu og tengir baðaðstöðuna sterklega við umhverfi sitt.

Verkefnið hlaut mikla athygli strax eftir opnun. Árið 2019 voru Sjóböðin á lista Time Magazine yfir 100 áhugaverðustu staði heims til að heimsækja og sama ár hlutu þau nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Húsavík


Stærð:


600 m²


Verktími:


2016 – 2018


Þjónusta Verkís





Heimsmarkmið