Kísilverksmiðja PCC á Bakka
Húsavík
Verkís annaðist forhönnun á verksmiðjunni, grundunnar-, hönnunar og álagsskilgreiningar fyrir mannvirki, kostnaðarskoðunar/áætlanir og kostnaðaráætlun um framkvæmdina í heild sinni.
Stærðir: 32.000 tonn á ári |
Verktími: 2012 - 2013 |
Almennt um verkefnið:
Um er að ræða forhönnun á Kísilverksmiðju PPC á Bakka við
Húsavík fyrir SMS-Siemag AG, sem er með samning við PCC í Þýskalandi. Um er að
ræða um 45.000m² af byggingum og um 13 hektara lóð. Framleiðslugeta verksmiðjunnar í þessum áfanga er áætlaður
um 32.000 tonn á kísil, með ætlanir um stækkun upp í 64.000 tonna
ársframleiðslu.
Verkið tekur til grundunnar-, hönnunar- og álagsskilgreiningar fyrir mannvirki, forhönnun, kostnaðarskoðunar/áætlanir og er lokaafurðin kostnaðaráætlun um framkvæmdina í heild sinni.
Hönnunin skiptist í eftirfarandi flokka: burðarvirki/grundun, lagnir- og loftræsilagnir, rafmagn, bruna- og öryggishönnun, lóðarhönnun og arkitektahönnun.
Óbeint verkefni Verkís sem tengjast Kísilverksmiðju PCC á Bakka er:
- Eftirlit með gerð Húsavíkurhöfðaganga sem tengja saman iðnaðarsvæðið á Bakka við Húsavíkurhöfn. Verkís hafði umsjón og eftirlit með verkinu fyrir Vegagerðina. Göngin voru tekin í notkun í nóvember 2017.