Verkefni
Unnið er að stækkun flugvallarins í Ilulissat á Grænlandi.
Verkís hannar undirstöður fyrir nýja flugstöðvarbyggingu í Ilulissat á Grænlandi ásamt því að veita aðra ráðgjöf til verktakans.
Verkefni
Unnið er að stækkun flugvallarins í Ilulissat á Grænlandi.
Verkís hannar undirstöður fyrir nýja flugstöðvarbyggingu í Ilulissat á Grænlandi ásamt því að veita aðra ráðgjöf til verktakans.
Unnið er að stækkun flugvallarins í Ilulissat á Grænlandi. Flugbraut vallarins verður lengd úr 845 metrum í 2200 metra og þremur byggingum bætt við: flugstöð, þjónustubyggingu og flugturni. Eftir stækkun munu þotur geta lent á flugvellinum.
Gert er ráð fyrir mikilli uppbyggingu á svæðinu næstu árin í kringum ferðamannaiðnaðinn. Landslagið á þessum slóðum er stórfenglegt og þar er m.a. Ísfjörðurinn þar sem hægt er að sjá risavaxna ísjaka og Grænlandsjökul brotna.
Stækkun flugvallanna í Ilulissat og Nuk bætir samgöngutengingar í landinu. Beinu flugi mun fjölga og hægt verður að draga úr kostnaði, ferðatíma og koltvísýrings með færri innanlandsferðum á Grænlandi.
Verkís er saman með verktaka í alútboði ásamt fleiri ráðgjöfum. Verkís sá um að hanna undirstöður fyrir flugstöðvarbygginguna, var ráðgefandi fyrir verktakann varðandi ýmis atriði sem tengjast burðarþoli, yfirfer hönnunargögn ráðgjafa frá framleiðendum, sá um samantekt á hönnunargögnum annarra ráðgjafa vegna hönnun burðarþols fyrir allar þrjár byggingarnar og gerð hönnunarskýrslu fyrir allar þrjár byggingarnar.
Lengd flugbrautar
Nýjar byggingar
Að stækka flugvöllinn í Ilulissat þannig að hann geti tekið á móti þotum og jafnframt styrkja samgöngutengingar Grænlands. Verkefnið þarf að taka mið af krefjandi náttúrulegum aðstæðum og umfangsmikilli uppbyggingu á svæðinu, meðal annars vegna vaxandi ferðamannaiðnaðar.
Verkís tekur þátt í alútboði með verktaka og öðrum ráðgjöfum. Verkís hannar undirstöður nýrrar flugstöðvarbyggingar og veitir ráðgjöf um burðarþol. Þá yfirfer Verkís hönnunargögn frá framleiðendum, samræmir hönnunargögn annarra ráðgjafa vegna burðarþols allra þriggja bygginganna og útbýr hönnunarskýrslu fyrir verkefnið.
Verkefnið í hnotskurn
Staðsetning:
Ilulissat, Grænland
Stærð:
2.200 metrar
Verktími:
2020 –
Kynntu þér hvernig við höfum aðstoðað viðskiptavini við að leysa flóknar tæknilegar, umhverfislegar og rekstrartengdar áskoranir með nýstárlegum verkfræðilausnum og stefnumótandi ráðgjöf á fjölbreyttum mörkuðum.