Skip to content

Verkefni

Reykjavíkurflugvöllur

Reykjavíkurflugvöllur er einn af fjórum alþjóðlegum flugvöllum á Íslandi.

Þar sem nokkuð er um millilanda umferð um völlinn þó mestur hluti umferðarinnar sé innanlandsflug.



Yfirlit verkefnis

Reykjavíkurflugvöllur er einn af fjórum alþjóðlegum flugvöllum á Íslandi þar sem nokkuð er um millilanda umferð um völlinn þó mestur hluti umferðarinnar sé innanlandsflug. Vegna staðsetningar flugvallarins nálægt Landspítalanum við Hringbraut gegnir hann mikilvægu hlutverki fyrir sjúkraflug.
 
Verkefnið snýr að endurbyggingu beggja aðalflugbrauta Reykjavíkurflugvallar og aðlögun SV-NA brautar, bygging og aðlögun akstursbrauta og endurnýjun rafbúnaðar. Forathuganir, hönnun og aðstoð við umhverfismat var meðal þeirrar þjónustu sem Verkís veitti á verkefnatíma. Ásamt verkefnisstjórnun á undirbúnings- og  framkvæmdatíma. Þ.m.t. skipulagningu öryggismála, gerð kennsluefnis og kennslu á öryggisnámskeiðum og skiptingu verks í áfanga og svæði til þess að tryggja samfelldan rekstur flugvallarins á framkvæmdatíma.
 
Verkís hafði umsjón með forathugun, hönnun, verkefnastjórn og framkvæmdaeftirliti ásamt gerð kennsluefnis og kennsla á öryggisnámskeiðum.
1825m

Lengd flugbrautar



2

Aðalflugbrautir



Áskorunin

Að endurbyggja og uppfæra mikilvæga innviði Reykjavíkurflugvallar án þess að raska starfsemi hans. Sérstaklega þurfti að tryggja samfellt flugvallarstarf á meðan á framkvæmdum stóð, með vandaðri áfangaskiptingu, skipulagi öryggismála og aðlögun flugbrauta og akstursbrauta.

Lausnin okkar

Verkís sá um forathuganir, hönnun, verkefnisstjórn og framkvæmdaeftirlit vegna endurbyggingar flugbrauta og aðlögunar akstursbrauta. Verkefnið fól einnig í sér endurnýjun rafbúnaðar og aðstoð við umhverfismat.

Til að tryggja öruggan og samfelldan rekstur var framkvæmdum skipt upp í áfanga og svæði. Verkís sá jafnframt um skipulagningu öryggismála, gerð kennsluefnis og framkvæmd öryggisnámskeiða fyrir starfsfólk.

Niðurstaðan

Verkefnið skapaði traustari og endurbættan innviði fyrir Reykjavíkurflugvöll og tryggði að hægt væri að sinna nauðsynlegum framkvæmdum samhliða áframhaldandi starfsemi flugvallarins. Með markvissri verkefnisstjórn, öryggisskipulagi og áfangaskiptingu var unnt að lágmarka truflanir á starfseminni.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Vatnsmýri


Stærð:


1.825 metrar


Verktími:


1999 – 2003


Þjónusta Verkís





Heimsmarkmið