Verkefni

Brú yfir Jökulsá á Sólheimasandi

Árið 2019 skrifaði Verkís undir samning við Vegagerðina um forhönnun á nýrri brú yfir Jökulsá á Sólheimasandi með það að markmiði að tvöfalda veginn yfir ána.

Nánar um verkefnið

Núverandi brú yfir Jökulsá á Sólheimasandi er 159 metrar og var byggð 1967. Hún liggur yfir 9,5 km langa jökulá sem rennur úr Sólheimajökli. 

Eitt af skilgreindum markmiðum Samgönguáætlunar ríkisstjórnarinnar er að útrýma einbreiðum brúm á þjóðvegum þar sem fleiri en 200 ökutæki fara um á sólarhring að meðaltali (ÁDU).

Verkís lauk forhönnun á brúnni árið 2019 og skrifaði í apríl árið 2020 undir samning um fullnaðarhönnun nýju brúarinnar. Hönnunin mun byggja á forhönnuninni.  Þá mun Verkís einnig vinna útboðsgögn að undanskilinni verklýsingu sem verður skrifuð af Vegagerðinni.

Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:

Suðurland

Stærð:

160 m

Verktími:

2019 – 2021

 

Heimsmarkmið