Fráveita Akranes, Borgarnes og Kjalarnes
Akranes - Borgarnes - Kjalarnes
Verkís annaðist jarðfræðirannsóknir, jarðtækni, skipulagshönnun, vélakerfi, veitur og sjólagnir, lagna- og loftræsikerfi, framkvæmdaeftirlit og landmælingar.
Stærðir: 200 - 500 m2 og 60 - 460 l/s |
Verktími: 2005 - 2010/2014 - 2018 |
Almennt um verkefnið:
Bygging hreinsistöðva ásamt lagningu frárennsliskerfis á Akranesi, í Borgarnesi og á Kjalarnesi var hluti af verkefnum Orkuveitu Reykjavíkur varðandi frárennsli í Borgarfirði.
Byggðar voru hreinsistöðvar á Akranesi, í Borgarnesi og á Kjalarnesi, milli 200 og 500 m2. Magn skólps, sem dælt er frá hverri stöð, er á bilinu 60 - 460 l/s. Lagðar voru nýjar fráveitulagnir - bæði sjálfrennslis- og þrýstilagnir - ásamt uppsetningu á 13 forsmíðuðum dælubrunnum. Á Akranesi og í Borgarnesi voru einnig byggðar staðsteyptar dælustöðvar, tvær á hvorum stað. Samhliða fráveitulögnum voru einnig lagðar hitaveitu- og vatnslagnir ásamt fjarskiptalögnum.
Verkinu lýkur með lagningu sjólagna frá hreinsistöðvunum á Akranesi, í Borgarnesi og á Kjalarnesi og gangsetningu hreinsistöðvanna.