23/09/2019

Verkís tekur þátt í sýningunni Sjávarútvegur 2019

Sjávarútvegssýning
Sjávarútvegssýning

Sýningin Sjávarútvegur 2019 verður haldin í Laugardalshöll dagana 25.-27. september 2019. Tilgangur sýningarinnar er að finna flöt fyrir fagaðila og áhugafólk um sjávarútveg til að kynnast þróun og nýjungum í sjávarútvegi.

Verkís verður með sýningarbás á svæði A-7 í Laugardalshöll og þar verður meðal annars hægt að skoða eina fullkomnustu fiskvinnslu í Evrópu, G.Run. í Grundarfirði í sýndarveruleika.

Verkís hefur á að skipa fjölbreyttum hópi sérfræðinga og býður sérhæfða þjónustu fyrir sjávarútveginn. Þar má meðal annars nefna verkefnastjórnun, kostnaðaráætlanir, hönnun, mat á umhverfisáhrifum, tímaáætlanir, BIM, 3D skönnun, eftirlit, öryggismál, hönnun stjórnbúnaðar og vinnu vegna landtenginga skipa.

Þjónusta Verkís á sviði sjávarútvegs
Heimasíða sýningarinnar Sjávarútvegur 2019

Sjávarútvegssýning
Sjávarútvegssýning