Varmárskóli – endurbætur á lóð, áfangi 1

Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið “Varmárskóli – endurbætur á lóð, 1.áfangi”.

Um er að ræða endurbætur á skólalóð, upphitaðann sparkvöll, stærð 18x33m, stálrimlagirðingu umhverfis völlinn samtals 118m og um 400m2 hellulögn. Koma skal fyrir 3 niðurföllum og snjóbræðslu sem þekur 710 m2. Uppsetning á 4 ljósastaurum ásamt búnaði fyrir ljósastýringu.

Um er að ræða opið útboð.

Fyrirspurnarfrestur rennur út 27. september 2023 kl. 12:00
Svarfrestur verkkaupa rennur út 29. september 2023
Opnunartími tilboða 5. október 2023 kl. 14:00
Opnunarstaður tilboða Rafræn opnun hjá Verkís