04/06/2025

Anna Magnúsdóttir fagnar 50 ára starfsafmæli hjá Verkís

Önnu var vel fagnað í vikunni

Frá spjaldskrá yfir í stafræna þekkingarmiðstöð

Fimmtíu ár eru liðin síðan Anna Magnúsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur, hóf störf hjá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen (VST), sem síðar sameinaðist Verkís. Hún var aðeins 23 ára þegar hún hóf störf 1. júní 1975 og hefur síðan þá verið lykilmaður í uppbyggingu og þróun bókasafnsins og upplýsingaflæðis innan fyrirtækisins.

Það var vorið 1975 sem Anna rak augun í auglýsingu í lesaðstöðu bókasafnsfræðinema í Háskóla Íslands þar sem óskað var eftir aðila til að koma upp bókasafni fyrir VST. Hún sótti um og var ráðin – og hefur sinnt starfinu með metnaði, fagmennsku og yfirgripsmikilli þekkingu allar götur síðan.

„Daginn sem ég byrjaði var verið að mála herbergið sem bækurnar höfðu verið geymdar í og allt lá í hrúgu á gólfinu,“ sagði Anna í viðtali við fréttabréfið Gangverk árið 2006.

Þróun bókasafns og upplýsingakerfa

Þegar Anna hóf störf var bókasafnið til í formi spjaldskrár sem varðveitt var í einföldum trékassa. Hún tók strax til við að byggja upp safnið og þróaði sérsniðið flokkunarkerfi sem tók mið af starfsemi stofunnar og nýtist enn þann dag í dag. Anna hefur leitt innleiðingu þriggja bókasafnskerfa og sinnt varðveislu og aðgengi að bókum, skýrslum, stöðlum, tímaritum og verkfræðilegum teikningum.

Árið 2006 voru yfir 21.000 einingar skráðar í safnið og um 70.000 vinnuteikningar til varðveislu. Það má gera ráð fyrir að þessi tala sé orðin töluvert hærri í dag. Teikningasafnið nær aftur til ársins 1932 og elsta teikningin sem varðveitt er er frá 1927.

Anna hefur einnig haldið utan um myndasafn fyrirtækisins og lagt sitt af mörkum til varðveislu sögulegra gagna um starfsemi Verkís.

Traustur félagi í gegnum áratugi

Anna hefur starfað undir fjórum framkvæmdastjórum – Lofti Þorsteinssyni, Viðari Ólafssyni, Sveini Ólafssyni og Agli Viðarssyni – og orðið vitni að gríðarlegum breytingum í starfsemi fyrirtækisins, ekki síst í þróun tækni, skjalaumsýslu og aðgengi að þekkingu. Hún hefur stutt starfsfólk af nærgætni og fagmennsku, hvort sem það endar með bók í hönd eða stafrænan aðgang.

„Það er kostur að vinna á einkasafni,“ sagði hún í Gangverki, „hér er maður í nánu samstarfi við starfsfólkið – ef bók týnist, eru kannski fimm sem kunna að vera með hana.“

Anna Magnúsdóttir

Ferðalög og menning í fyrirrúmi

Utan vinnunnar er Anna mikill áhugamaður um bækur, listir og menningu – og ekki síður um ferðalög. Hún hefur heimsótt fimm heimsálfur og 73 lönd. Sérstaklega á Asía hug hennar, þar sem hún hefur ferðast um lönd á borð við Búrma, Kambódíu, Víetnam og Indland.

„Í Búrma áttaði ég mig á því að ég hafði aldrei áður séð þetta sérstaka letur – maður er algerlega ólæs,“ sagði hún og bætti við að það gæti verið hvíld frá bókasafnsstarfi að vera ólæs ferðalangur í framandi menningu.

Þakkir og hamingjuóskir frá samstarfsfólki

Við hjá Verkís óskum Önnu innilega til hamingju með þessi einstöku tímamót og þökkum henni fyrir ötult og ómetanlegt framlag til fyrirtækisins í hálfa öld.

Önnu var vel fagnað í vikunni