30/05/2025

Aðalfundur Orkuklasans haldinn hjá Verkís

Fundargestir í Ofanleitinu

Aðalfundur Orkuklasans haldinn hjá Verkís

Aðalfundur Orkuklasans fór fram í gær í húsakynnum Verkís við Ofanleiti. Fjölmenni var á fundinum þar sem aðildarfélög klasans komu saman til að fara yfir stöðu og framtíðarsýn vettvangsins. Verkís er stoltur þátttakandi í Orkuklasanum og þakkar fyrir það traust að fá að hýsa fundinn í ár.

Ráðherra lagði áherslu á samvinnu og umbreytingu orkukerfisins

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, setti fundinn með ávarpi þar sem hann lagði áherslu á mikilvægi samvinnu, nýsköpunar og framtíðarlausna í umbreytingu orkukerfisins. Hann þakkaði Orkuklasanum sérstaklega fyrir öflugt starf við að efla þróun og samkeppnishæfni í orkumálum.

Skýr stefna og áhrifaríkt samstarf

Rósbjörg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Orkuklasans, kynnti starfsemi síðasta árs og fór yfir áhrifaríkt samstarf innan klasans. Í sameiginlegri yfirlýsingu fundarins var lögð áhersla á samstöðu meðal félaga og mikilvægi þess að vinna saman þvert á greinar með áherslu á nýsköpun, sjálfbærni og alþjóðlega samkeppnishæfni.

Nýr formaður tekur við

Sigurður Atli Jónsson, forstjóri Arctic Europe, var kjörinn nýr formaður Orkuklasans til tveggja ára og tekur við formennsku af Árna Magnússyni sem gegnt hefur embættinu frá árinu 2021. Sigurður Atli þakkaði fyrir traustið og lagði áherslu á mikilvægi þess að nýta kraft klasa­starfs til að mæta áskorunum framtíðarinnar.

Hægt er að kynna sér nánar störf Orkuklasans hér.

Heimsmarkmið

Fundargestir í Ofanleitinu