28/10/2020

Dýrafjarðargöng opin fyrir umferð

Opnun var með heldur öðruvísi sniði vegna sóttvarna og hringdi
ráðherra vestur á Ísafjörð
í vaktstöð Vegagerðarinnar frá höfuðstöðvum hennar í Reykjavík. 

Fyrir vestan
var þá slánum lyft upp frá báðum gagnamunnum. Við munnana beið mikill
fjöldi Vestfirðinga í löngum bílaröðum eftir því að fá að keyra í gegn.

Verkís hafði umsjón með útboðsgögnum, steypuhönnun
á vegskálum og öðrum steyptum mannvirkjum inn í göngunum. Verkís hannaði einnig veglínuna
að göngunum og sá um fullnaðarhönnun vegarins fyrir utan göngin.

Dýrafjarðargöng eru 5,6 km löng
(5,3 km í bergi og 300 m í vegskálum) og með tilkomu þeirra styttist Vestfjarðavegur
(60) um 27,4 km og að auki mun vegurinn yfir Hrafnseyrarheiði leggjast af en
hann hefur verið mikil farartálmi yfir vetrarmánuðina vegna snjóþyngsla og
snjóflóðahættu. 

Hér er hægt að horfa á athöfnina.
Frétt Vegagerðarinnar: Göngin opin fyrir umferð 

Dýrafjarðargöng
ym2ykq8