10/10/2018

Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2018

Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2018
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga Verkís bás

Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2018. Verkís tekur þátt í Fjármálaráðstefnu sveitarfélagana dagana 11.-12. október. Þar kynna starfsmenn Verkís þá víðtæku þjónustu sem fyrirtækið býður sveitarfélögum.

Á bás Verkís verður boðið upp á sýndarveruleika þar sem gestir geta stígið inn í tölvugert líkan af Stapaskóla og/eða Leikskólanum í Reykholti.

Ráðstefnan er haldin á Hilton Reykjavík Nordica, þar sem fjallað verður um margvísleg málefni sem tengjast fjármálum sveitarfélaga á Íslandi, stöðu þeirra og framtíðarsýn.

Við bjóðum alla gesti ráðstefnunnar velkomna til okkar á básinn.

Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2018
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga Verkís bás