05/12/2018

Fjölnota íþróttahús í suður Mjódd

Íþróttasvæði ÍR
Íþróttasvæði ÍR

Í mars 2017 var byggingarnefnd um svæði ÍR sett á laggirnar en þar sitja fulltrúar Verkís ásamt fulltrúum Reykjavíkurborgar og ÍR.

Formaður byggingarnefndar er Yrsa Sigurðardóttir, sem er jafnframt titlaður verkefnisstjóri.

Vinna byggingarnefndar felst í umsjón með framkvæmdum við ný mannvirki á svæði ÍR í Mjódd. Um er að ræða stjórn hönnunar og uppbyggingu á fjölnota íþróttahúsi, parkethúsi og tengibyggingum. Byggingarnefnd ræður hönnuði til verksins og er þeim til ráðgjafar um útfærslur mannvirkja. Þá hefur nefndin umsjón með öllum útboðum á verklegum framkvæmdum.

Hlutverk Verkís

Fyrsta verk byggingarnefndar var að koma af stað vinnu við fjölnota íþróttahús sem áætlað er að verði fullklárað og rekstrarhæft í lok árs 2019. Verkís sá um forhönnun á húsinu ásamt Arkís arkitektum. Þá var gerð ýtarleg kostnaðaráætlun samhliða þeirri vinnu. Byggingarnefnd tók í framhaldinu ákvörðun um að bjóða verkið út í alútboði og var Verkís fengið til þess að útbúa alútboðsgögnin.
Verkið var boðið út í byrjun júlímánaðar og tilboð opnuð 4. október síðastliðinn. Í framhaldinu var ákvörðun tekin í Borgarráði að veita byggingarnefnd heimild til að ganga til samninga við lægstbjóðanda.

Fjölnota hús

Fjölnota íþróttahús verður 51,5m x 84m að utanmáli eða 4326m2 og hliðarbygging meðfram langhlið þess á tveimur hæðum, 84m x 7,5m x 2 eða alls 1260m m2 . Húsið verður stálgrindarhús klætt með samlokueiningum með steinullareinangrun og steyptum spyrnuveggjum á austanverðri langhlið þess.

Uppgefinn hámarksfjöldi fólks í fjölnota íþróttahúsi er 300 manns en brunahönnun er miðuð við 2.500 manns.
Í íþróttahúsinu verður gervigrasvöllur (68,2m x 50,8m) sem uppfyllir kröfur KSÍ til 7 – 8 manna bolta og aðstaða til iðkunar frjálsra íþrótta (15m x 50,8m) í norðurenda hússins.
Frjálsíþróttaaðstaða mun samanstanda af tartanbrautum og tveimur sandgryfjum til stökkæfinga ásamt aðstöðu fyrir hástökk og stangarstökk. Fjölnota íþróttahús verður upphitað á svæði frjálsra íþrótta, með loftræsikerfi, ofnum eða samspil á þessu tvennu. Svæði fyrir knattspyrnuiðkun verður ekki upphitað að öðru leyti en því að tryggt verður 5° C lágmarkslofthiti. Hliðarbyggingin verður upphituð með ofnum eða gólfhita. Neðri hæð hennar mun rúma ýmsa aðstöðu, m.a. geymslu, aðstöðu fyrir lyftingar, tæknirými, búningsklefa og salerni. Efri hæð hliðarbyggingar er að mestu opið rými fyrir utan einn afmarkaðan sal. Auk stiga milli hæða mun lyfta ganga milli efri og neðri hæðar hliðarbyggingar.
Verkís mun verða ráðgjafi verkkaupa á framkvæmdartíma.

Íþróttasvæði ÍR
Íþróttasvæði ÍR