08/10/2018

Fyrirmyndarfyrirtæki

Fyrirmyndarfyrirtæki 2018
Fyrirmyndarfyrirtæki 2018

Samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins og Keldunnar telst Verkís til fyrirmyndarfyrirtækis í rekstri.

Um 3% fyrirtækja landsins komast á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar. Til þess að komast á listann þurfa fyrirtæki að hafa skilað jákvæðri afkomu á rekstrarárinu 2017. Tekjur þurfa að hafa verið umfram 30 milljónir króna, eignir yfir 80 milljónum og eiginfjárhlutfall yfir 20%.

Auk þess er tekið tillit til annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni.

Hér má sjá sérblað Viðskiptablaðsins og Keldunnar um fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2018.

Fyrirmyndarfyrirtæki 2018
Fyrirmyndarfyrirtæki 2018