28/08/2018

Gas- og jarðgerðarstöð í Álfsnesi

undirskrift

Verkís skrifaði í dag undir samning við Sorpu vegna gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi og mun sjá um eftirlit með framkvæmdum.

Fyrsta skóflustungan að stöðinni var tekin í síðustu viku, sem er ætluð til endurnýtingar lífræns heimilisúrgangs af höfuðborgarsvæðinu. Gas- og jarðgerðarstöðin mun taka til vinnslu allt að 36.000 tonnum af heimilisúrgangi á ári. Gólfflötur byggingar er samtals áætlaður um 12.000m2. Stöðin verður reist á svæði Sorpu í Álfsnesi.  Miðað við áætlanir Sorpu verður hægt að tvöfalda afkastagetu stöðvarinnar ef þörf krefur. Gert er ráð fyrir að yfir 95% heimilisúrgangs sem berst til móttöku- og flokkunarstöðvar Sorpu í Gufunesi verði endurnýttur, með einum eða öðrum hætti þegar stöðin verður fullbúin.

Stöðin samanstendur af móttökuaðstöðu fyrir úrgang, vinnslusal og tíu þroskunarklefum fyrir lífrænan úrgang, auk geyma til hauggasgerðar. Áætlað er að framleiðslan verði um 3 milljónir Nm3 af metangasi og 10-12.000 tonn af jarðvegsbæti, sem talinn er henta til landgræðslu.

Tæknilausnir koma frá Aikan/Solum AS í Danmörku. Arkitektar við þróun verkefnis voru Batteríið Arkitektar og Mannvit hefur haldið utan um vinnu við útboð.

Samið var við Ístak um framkvæmdir, eftir alútboð. Framkvæmdir hefjast seint í ágúst og stefnt er að opnun stöðvar í árslok 2019.

undirskrift