28/05/2020

Hanna göng sem tengja Nuuk við nýtt úthverfi

Hanna göng sem tengja Nuuk við nýtt úthverfi
Vegtenging við úthverfi Nuuk

Hanna göng sem tengja Nuuk við nýtt úthverfi. Til stendur að reisa nýtt úthverfi á Siorarsiorfik, ósnortnu svæði suðaustur af Nuuk á Grænlandi, til að mæta fólksfjölgun í höfuðborginni. Verkís vinnur þessa dagana ásamt samstarfsfólki sínu hjá S&M Verkís í Nuuk að hönnun ganga sem munu tengja hverfin saman. Verkís mun einnig vinna útboðsgögn.

Íbúum Nuuk fjölgar um 200 til 300 á ári hverju. Mörg hús í borginni eru illa farin og henta illa til búsetu. Á næstu árum er áætlað að fjölga heimilum í Nuuk um 800 og 3.400 í nýja hverfinu Siorarsiorfik. Nýr skóli verður byggður í Nuuk sem leysir tvo aðra af hólmi og einn nýr skóli verður reistur í nýja út hverfinu. Húsnæðið verður hannað með það í huga að þau standi vel af sér veðrabrigði norðurskautssvæðisins.

Á síðasta ári veittu sérfræðingar Verkís jarðfræðilega ráðgjöf við grunnrannsóknir vegna áætlaðrar jarðgangagerðar fyrir veg- og jarðgöng til uppbyggingar á nýju íbúahverfi við Nuuk. Verkefnið er unnið fyrir Nuuk City Development A/S. Nú er komið að hönnun vegtengingarinnar.

Charlotte Ludvigsen, borgarstjóri í Sermersooq á Grænlandi, sagði í samtali við vefmiðil sveitarfélagsins að vegtengingin milli hverfanna tveggja sé risastórt skref í rétta átt. Nuuk skorti land og göng að Siorarsiorfik þýði að fleiri geti fengið sitt eigið íbúðarhúsnæði og stjórnsýslan einnig.

Vegtengingin á milli hverfanna verður um 1,5 km en þar af eru eins kílómeters löng göng. Göngin verða tvíbreið og hvor akrein 3,5 m á breidd. Þá verður einnig sameiginlegur stígur fyrir gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk. Stígurinn verður vel aðskilinn frá veginum. Vonast er til þess að göngin verði komin í notkun eftir þrjú ár.

Hér má sjá myndband af vegtengingunni: 

https://vimeo.com/420350211

Hanna göng sem tengja Nuuk við nýtt úthverfi
Vegtenging við úthverfi Nuuk