02/11/2021
Haustráðstefna VSF
![Haustráðstefna VSF](https://www.verkis.is/wp-content/uploads/2022/06/haustrasdtefna-vsf.jpg)
Haustráðstefna VSF. Verkís er einn af styrktaraðilum Haustráðstefnu VSF sem fer fram á Hiltun Reykjavík Nordica á morgun, fimmtudaginn 4. nóvember.
Þemað í ár er fólkið og mannauðurinn í verkefnum, menningin og samskipti sem leiða til árangurs.
Agnes Hólm Gunnarsdóttir, gæðastjóri hjá Verkís, mun halda fyrirlestur með yfirskriftinni „Er þetta verkefni eitthvað sérstakt?“.
Verkís leggur ríka áherslu á faglega verkefnastjórnun í sínum verkefnum og er stöðugt að leita leiða við að þróa og bæta ferli og aðferðir tengt verkefnastjórnun.
Vefsíða VSF: Dagskrá og skráning ráðstefnunnar.