13/02/2018

Íslenskhönnun tilnefnd til verðlauna í Noregi

Holmen sundhöll
Holmen sundhöll

Sundlaugin Holmen í Asker í Noregi hefur verið tilnefnd sem bygging ársins 2017 af Samtökum atvinnulífsins í Noregi (NHO).

Sundlaugin er hönnuð af Arkís arkitektum og Verkís. Verkís er heildarráðgjafi verkefnisins en Arkís arkitektar hafa séð um alla arkitektahönnun. Verkefninu var stýrt af OP-Verkis í Osló.

Sundlaugin er eitt af fimm verkefnum sem hlutu tilnefninguna í ár. Tilkynnt verður um sigurvegarann þann 14. mars nk. í tengslum við hátíðina Byggedagene í Osló.

Sundlaugin var opnuð síðastliðið sumar og hefur vakið mikla athygli. Mikill metnaður var lagður í verkefnið af hálfu Asker sem er byggjandi að þessu verkefni. Lagði bærinn til eina af eftirsóknarverðustu lóðunum við ströndina sem enn var til umráða og nýtur sundlaugin nálægðar við ströndina í beinum tengslum við Osló fjörðinn.

Sundlaugin er ein orkuhagkvæmasta sundhöll Noregs. Hátt í helmingur orkunnar sem notuð er við rekstur sundhallarinnar er aflað á lóð hennar. Til þess eru notaðar varmadælur sem sækja orku úr 15 um 220 m djúpum borholum á lóðinni, sólarrafhlöður og sólarfangarar. Sundlaugin var valin eitt af svokölluðum fimmtíu fyrirmyndarverkefnum FutureBuilt í Noregi. Verkefnin eiga að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um 50% innan sviða umferðar-, orku- og efnisnotkunar.

Arkitektúr hússins byggir á þeim væntingum sem til hans voru gerðar. Þak hússins er til dæmis aðgengilegt og formað sem hallandi grasflötur mót suðri og fangar fallegt útsýni fjarðarins. Auk arkitektahönnunar sáu Arkís um landslagshönnun og önnuðust umsjón með löggiltum byggingarleyfum. Arkitektúr hússins hefur þegar hlotið mikið lof og umtal í Noregi.

Verkís annaðist verkefnastjórn, gerð kostnaðaráætlana, hönnun allra verkfræðilegra þátta, hönnun gatnakerfis, jarðtækni, gerð útboðsgagna, ráðgjöf á framkvæmdartíma og gerð rekstrarhandbókar.

Holmen sundhöll
Holmen sundhöll