09/02/2018

Martina Frattura kynnir verkefnið A Beautiful Light

Í rannsókninni eru könnuð sálræn tengsl fegurðar og ljóss. Hugmyndin er að finna mælikvarða á hvernig ljósið tengist skynjun fólks á fegurð. Tilraunin verður gerð víða um heim, meðal annars á Íslandi, í Búlgaríu, Portúgal og Tyrklandi.  

Frattura mun kynna verkefnið í húsakynnum Verkís í Ofanleiti 2 í Reykjavík fimmtudaginn 15. febrúar kl. 11. Viðtöl við sjálfboðaliða í rannsókninni fara fram í sama húsi dagana 15., 16., 17. og 19. febrúar á milli kl. 12 og 14. 

Lýsingarteymi Verkís og Ljóstæknifélag Íslands hvetja þau sem eru áhugasöm að mæta á kynninguna og taka þátt í rannsókninni. Allir velkomnir. 

Umfjöllun tímaritsins ARC um rannsóknarverkefnið

Martina-Frattura