04/11/2021
Neyðarkallinn
![Neyðarkallinn](https://www.verkis.is/wp-content/uploads/2022/06/neydarkallinn-2021-scaled.jpg)
Neyðarkallinn. Verkís styrkir Landsbjörg með kaupum á Neyðarkallinum.
Verkís er stolt af því að hafa innan sinna raða starfsfólk sem vinnur óeigingjarnt starf í þágu björgunarsveita á Íslandi.
Í dag selur starfsfólk Verkís, sem er í björgunarsveitum Landsbjargar, neyðarkallinn innan fyrirtækisins.
Samhliða sölunni kaupir Verkís, líkt og undanfarin ár, stóra Neyðarkallinn ásamt því að leggja málefninu lið með fjárframlagi.
Salan á neyðarkallinum er ein stærsta fjáröflun Landsbjargar og í ár stendur salan yfir um allt land dagana 4. nóvember til og með 7. nóvember.
Sjá nánar: landsbjorg.is
Heimsmarkmið
![](https://www.verkis.is/wp-content/themes/verkis/assets/img/Verkis-proof-18.png)