20/05/2025

Ný brú tengir Vogahverfi og Vogabyggð

© www.visir.is
Brúin er bæði hjóla- og göngubrú

Göngu- og hjólabrú yfir Sæbraut – hönnuð af Verkís – komin á sinn stað

Aðfaranótt 20. maí var ný göngu- og hjólabrú hífð á sinn stað yfir Sæbraut í Reykjavík. Brúin, sem er 28 metra löng, tengir saman Vogahverfi og nýja Vogabyggð og er mikilvægur liður í að efla vistvænar samgöngur í borginni. Verkís sá um hönnun brúarinnar, sem var unnin í nánu samstarfi við Vegagerðina, Reykjavíkurborg og Betri samgöngur ohf.

Hönnun sem þjónar samfélaginu

Markmið brúarinnar er að bæta öryggi og tengingar fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, með sérstakri áherslu á skólabörn á leið til og frá Vogaskóla. Verkís lagði áherslu á notendavæna og trausta hönnun sem fellur vel að borgarumhverfinu og stuðlar að sjálfbærum samgöngum.

Brúin var smíðuð í heilu lagi í Mosfellsbæ og flutt á staðinn þar sem hún var hífð upp á stigahús við Dugguvog og Snekkjuvog. Til að tryggja öryggi allra vegfarenda voru settar upp hæðartakmarkanir á Sæbraut, þar sem hámarkshæð undir brúna er nú 4,8 metrar.

Lokafrágangur í fullum gangi

Unnið er nú að tengingu brúarinnar við stíga, frágangi stigahúsa, lýsingu og öryggisbúnaði. Gert er ráð fyrir að brúin verði formlega opnuð til notkunar á næstu vikum, að því gefnu að veður og aðstæður leyfi.

Verkís er stolt af því að hafa hannað þetta mikilvæga mannvirki sem stuðlar að auknum lífsgæðum, öruggari samgöngum og bættri tengingu borgarhluta – í takt við markmið Reykjavíkurborgar um sjálfbæra þróun.

Heimsmarkmið

© www.visir.is
Brúin er bæði hjóla- og göngubrú