23/03/2018

Opna stjörnuver í einum af tönkum Perlunnar

Perlan
Perlan

Í haust er stefnt að því að opna nýtt, hátæknivætt stjörnuver í einum af tönkum Perlunnar. Verkís sér um alla verkfræðihönnun við gerð stjörnuversins í samvinnu við Reykjavíkurborg, Perlu norðursins og Bowen Technovation.

Stjörnuverið er hluti af umfangsmiklum endurbótum á Perlunni sem hefur fengið nýtt hlutverk sem náttúrusafn og miðstöð upplifunar.

Áhersla er lögð á upplifun við hönnun stjörnuversins. Gestir þess upplifa norðurljósin þegar þeir ganga í gegnum gang sem liggur að sjálfu stjörnuverinu. Þar setjast þeir í stóla sem hallað er aftur á bak og njóta þess sem himinhvolfið hefur upp á bjóða. Til að gera upplifunina sem magnaðasta eru notaðir sex til átt stórir þrívíddarskjávarpar sem varpa upp í hvelfinguna. Í stjörnuverinu verður fullkomið Surround-hljóðkerfi og bestu myndgæði sem í boði eru á heimsvísu í dag.

Stjörnuverinu fylgja margar verkfræðilegar áskoranir og fagnar Verkís því að fá að taka þátt í þessu spennandi verkefni.

Fyrsta sýningin, sem sýnir náttúruperlur Íslands á einstakan hátt, er sérstaklega samin fyrir nýja stjörnuverið er framleidd af Perlunni og hinu heimsþekkta Bowen Productions, sem sérhæfir sig í myndum fyrir stjörnuver.

Framkvæmdir við Perluna hófust árið 2017. Vinna Verkís við breytingarnar á Perlunni hefur verið margþætt og nær meðal annars til hönnunar burðarvirkja, lagna- og loftræsikerfa, rafkerfa, aðallýsingu og lýsingarkerfi í glerkúplinum á toppi byggingarinnar auk bruna- og hljóðhönnunar.

Þann 2. júlí 2017 opnaði Perlan sýninguna Jöklar og íshellir, sem er fyrsta skrefið í að búa til einstakt safn sem allir Íslendingar geta verið stoltir af. Náttúruminjasafn Íslands var opnað á annarri hæð Perlunnar 1. desember 2017.

Perlan
Perlan