12/04/2024

Skapalón – Frá BIM360 til ACC – Gagnastýring, hugverkavernd og rýniferlar

Skapalón - Frá BIM360 til ACC

Skapalón – Frá BIM360 til ACC. Í morgun stóð BIM Ísland og Verkís fyrir örráðstefnu og umræðu um flutninginn frá BIM360 yfir á ACC. Viðburðurinn var haldinn í höfuðstöðvum Verkís að Ofanleiti 2 í salnum Ásbyrgi. Um var að ræða annan viðburðinn í seríunni BIM Skapalón sem BIM Ísland stendur fyrir.

Péter Farkas ræðir við gesti
Péter Farkas ræðir við gesti

Kynningin snérist um þá þróun og breytingu sem er að eiga sér sér stað á Autodesk BIM vinnusvæðunum. BIM 360 er að fasast út og Autodesk Construction Cloud ACC er að taka við. Ólafur Daníel Jónsson, leiðtogi stafrænnar hönnunar hjá Verkís, var með inngang í upphafi um tilurð ACC og samskipti Verkís við og ráðleggingar frá Autodesk um þessar umbreytingar. Péter Farkas, byggingarverkfræðingur hjá Verkís, fór svo betur í hvað Verkís hefur verið að prófa og hvernig það hefur reynst. Ragnar Steinn Clausen og Rut Bjarnadóttir frá Verkís voru einnig með í hugmyndavinnunni og rýni í undirbúningi fyrirlestrarins.

Að kynningu lokinni sköpuðust líflegar og gefandi umræður um þetta mikilvæga málefni.

Heimsmarkmið

Skapalón - Frá BIM360 til ACC