27/03/2023

Snjótæknilegri hönnun varnargarða í Neskaupstað lokið

Á myndinni er búið að teikna varnarmannvirkin sem stendur til að reisa fyrir ofan Mýra- og Bakkahverfi í Neskaupstað inn á ljósmynd af svæðinu. 

Undirbúningur vegna framkvæmda við síðasta hluta ofanflóðavarnargarða fyrir ofan byggðina í Neskaupstað er langt kominn. Að framkvæmdunum loknum munu alls fjórir garðar þvera byggðina alla og fyrir ofan garðana tvöfaldar keiluraðir. Efst í upptakasvæðum Drangagils og Tröllagilja eru 3 km af upptakastoðvirkjum. Verkís sá um snjótæknilega hönnun allra varnarvirkjanna í Neskaupstað.

Samkvæmt hönnun Verkís er gert ráð fyrir að 600 metra langur og 14 til 20 metra hár þvergarður rísi ofan Mýra- og Bakkahverfa. Fyrir ofan þvergarðinn verður komið fyrir tuttugu 10 metra háum keilum í tveimur röðum. Markmið með byggingu varnarvirkjanna er að stöðva hugsanleg snjóflóð fyrir ofan byggðina. Verkfræðistofan Hnit vinnur jarðtæknihönnun mannvirkjanna.

Staðfest er að þrjú flóð hafi fallið í Neskaupstað í dag, tvö í byggð en fleiri kunna að hafa fallið á varnargarðana. Flóðið sem féll úr Nesgili er það stærsta sem þekkt er úr gilinu.

Uppbygging varna hófst í Neskaupstað með vörnum undan Drangagili. Garðarnir risu á árunum 1999-2002.

Teikningin sýnir uppfært hættumat fyrir svæðið (27.3.2023) bæði án garða (heildregnar línur) og með görðum (strikalínur). Hér er einnig hægt að sjá teikninguna.
Á myndinni er búið að teikna varnarmannvirkin sem stendur til að reisa fyrir ofan Mýra- og Bakkahverfi í Neskaupstað inn á ljósmynd af svæðinu.