Snow 2019 – Verkís tekur þátt
Snow 2019. Í dag hefst alþjóðleg ráðstefna um snjóflóðavarnir á Siglufirði. Tilgangur hennar er að miðla upplýsingum um uppbyggingu ofanflóðavarna á Íslandi síðastliðin 20 ár og kynnast því nýjasta sem er að gerast á sviði ofanflóðavarna annars staðar í heiminum.
Verkfræðingafélag Íslands stendur að ráðstefnunni Snow 2019 sem ber yfirskriftina „International Symposium in Mitigation Measures against Snow Avalanches and other Rapid Gravity Mass Flows“.
Starfsfólk Verkís flytur tvö erindi á ráðstefnunni og mun það einnig kynna þátt fyrirtækisins í snjóflóðavörnum á Íslandi síðastliðin þrjátíu ár.
Kristín Martha Hákonardóttir, byggingarverkfræðingur og straumfræðingur á Orkusviði Verkís, flytur erindið The design of slushflow barriers: Laboratory experiments. Þar mun hún kynna meginniðurstöður rannsókna á vörnum gegn krapaflóðum í Stekkagili á Patreksfirði.
Hafþór Örn Pétursson, vélaverkfræðingur á Orkusviði Verkís, og Kristín Martha flytja erindið Use of RAMMS Avalanche and OpenFOAM to simulate the interaction of avalanches and slush flows with dam. Í erindinu munu þau fjalla um niðurstöður úr
rannsókn þar sem notast var við númerísk straumfræðilíkön við hönnun á
varnarmannvirkjum.
Unnt að verjast krapaflóðum með keilum
Rætt var við Kristínu Mörthu í Morgunblaðinu í gær um helstu niðurstöður rannsóknarinnar sem hún fjallar um í erindi sínu, sem og ráðstefnuna sjálfa.
Gerðar voru líkanatilraunir í húsnæði Vegagerðarinnar í Vesturvör í Kópavogi vegna hönnunar slíkra varnarmannvirkja á Patreksfirði og á Bíldudal. Hermt var eftir krapaflóðum sem sprungið gætu fram og fallið niður brattar hlíðar víða á Íslandi í kjölfar leysinga.
Meginniðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að unnt sé að verjast slíkum flóðum ofan byggðar á árangursríkan hátt með keilum ofan þvergarðs, til að brjóta flóðið upp. Verkefnið er enn á hönnunarstigi og kynningar á endurskoðuðum varnartillögum í Vesturbyggð hafa ekki farið fram. Rannsóknir og tilraunir vegna varna gegn krapaflóðum hafa staðið síðustu ár.
Kristín Martha sagði í samtali við Morgunblaðið að þvergarðurinn þjóni einnig sem snjóflóðavörn, því þurr snjóflóð geti líka fallið úr upptakasvæði ofarlega í Stekkagili. Keilur ofan þvergarðarins brjóti krapaflauminn og þvergarðurinn stöðvi síðan krapaflóðið. Styrkt op með stálgrindum verði á honum til að hleypa vatnselg í gegn. Virkni varnargarða gegn krapaflóðum sé önnur en gegn þurrum snjóflóðum.
Önnur leið til að verjast krapaflóðum gæti verið að hanna þvergarðinn úr stórgrýti eins og í brimvarnargörðum þannig að krapinn gæti gengið inn í garðinn og fyrsta höggið yrði þannig dempað.
Verkefnið við Gilsbakkagil á Bíldudal er skemmra á veg komið. Þar er miðað við minni krapaflóð og að nota annað hvort grjót eða keilur ofan þvergarðs.