14/03/2019

Sundlaugaráðstefna í Noregi

Sundlaugaráðstefna í Noregi
Badeteknisk 2019

Sundlaugaráðstefna í Noregi. Í gær, miðvikudag 13. mars, hófst ráðstefnan Badeteknisk í Hamar í Noregi.

Að þessu sinni sér starfsfólk OPVConsulting, dótturfyrirtækis Verkís í Noregi um að standa vaktina fyrir okkur á ráðstefnunni.

Ráðstefnan er haldin í Hamar í Noregi, þar sem fagaðilar koma saman og fjalla um allt sem lýtur að undirbúningi, hönnun, byggingu og rekstri sundlauga.

Verkís og OPV hafa komið að ýmsum sundlaugamannvirkjum undanfarin ár, þar má nefna sundhöllina í Holmen í Noregi, sundlaug inn í fjalli í Sisimiut á Grænlandi og sundlaug í Stapaskóla í Reykjanesbæ.

Heimsmarkmið

Sundlaugaráðstefna í Noregi
Badeteknisk 2019