Þúsund fermetra þjónustumiðstöð rís í Borgarnesi
Húsið verður reist á lóð við Digranesgötu 4. Til stendur að tvö hús verði á lóðinni en seinna húsið verður um 700 fermetrar. Lóðaframkvæmdir fara þó fram í þessum áfanga vegna beggja húsanna.
Gert er ráð fyrir stórum veitingastað í húsinu sem og verslun ásamt rúmgóðri hreinlætisaðstöðu. Húsið verður á einni hæð og aðgengi eins og best verður á kosið.
Verkís sá um alla verkfræðihönnun, þ.e. jarðtækni og grundun, burðarþolshönnun, brunahönnun, lagnir og loftræsingu, rafmagn, lýsingu, mælingar, lóð og plön við hús og ráðgjöf við hljóðvist.
Verkís studdist við BIM aðferðafræðina við vinnu verksins en öll hönnunarlíkön voru sett í skýþjónustuna BIM 360 Glue frá Autodesk þar sem líkönin voru samræmd og árekstrargreind.
Slík samræming og árekstragreining milli byggingahluta getur fækkað vandamálum og skapað hagræðingu á framkvæmdatíma. Einnig var settur upp sýndarveruleiki sem gerði verkkaupa og arkitektum hússins kleift að ganga í gegnum það og virða það fyrir sér.
Áætluð verklok eru 1. mars 2019.
Á myndunum sem fylgja fréttinni má sjá skjáskot af hönnunarlíkönum í Glue.
