13/06/2019

Tóku þátt í hjólakvöldi WOW Cyclothon og heimsóttu Reykjadal

Í gærkvöldi blésu WOW Cyclothon, sumarbúðirnar í Reykjadal og styrktaraðilar til hjólakvölds þar sem áfangastaðurinn var Mosfellsdalur, nánar tiltekið sumarbúðirnar í Reykjadal. Hjólað var frá Egilshöll, inn Mosfellsdal, upp á heiði og niður Kjósarskarðsveginn að malbiksenda. Þetta eru upphafskílómetrar keppninnar. 

Á leiðinni til baka niður Mosfellsdalinn lögðu þátttakendur smá krók á leið sína og heimsóttu Reykjadal. Þar tóku gestir og starfsfólk vel á móti sveittum hjólurum með kaffi og grillmat. 

Í ár sendir Verkís eitt tíu manna lið til keppni og er mikill hugur í liðinu. Tók hluti liðsins þátt í hjólakvöldinu og heimsótti Reykjadal. Hópurinn keppir í fyrirtækjaflokki þar sem krafan er um að allir í keppnishópnum séu starfsmenn fyrirtækisins sem þau keppa fyrir. Hér er hægt að heita á liðið. Þau eru bæði á Instagram og á Facebook

Lið Verkís í WOW Cyclothon 2019
Ágúst Elí Ágústsson
Bryndís Hallsdóttir
Hallgrímur Örn Arngrímsson
Hörn Hrafnsdóttir
Kári Steinar Karlsson
Linda María Ólafsdóttir
Ragnar Haraldsson
Sigurður Gústafsson
Vala Jónsdóttir
Þórður Þorsteinsson

Keppnin fer fram dagana 25. – 29. júní. Nánar má lesa um WOW Cyclothon á heimasíðu keppninnar

Sumarbúðirnar í Reykjadal eru reknar af Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra. Árlega koma um 250 börn og ungmenni í dvöl, en dvalargestir eiga það allir sameiginlegt að eiga ekki völ á hefðbundinni sumardvöl vegna fötlunar. 

Markmið Reykjadals er að gefa þeim sem þurfa sérstaka þjónustu kost á að njóta þeirra upplifana og ævintýra sem slíkar dvalir fela í sér. Um leið er haft að markmiði að hver og einn njóti sín á sínum eigin forsendum í góðra vina hópi. Áheit WOW Cyclothon verða mikil lyftistöng fyrir uppbyggingu Reykjadals, en áætlað er að nýta ágóða söfnunarinnar í mikla og þarfa viðbyggingu við sumarbúðirnar sem mun bæta aðstöðuna til muna.

Lið Verkís í WOW Cyclothon tók þátt í hjólakvöldi
wowreykjadalur