17/03/2021
Uppsteypu Húss íslenskunnar er lokið
![Uppsteypu Húss íslenskunnar er lokið](https://www.verkis.is/wp-content/uploads/2022/06/hus-islenskunnar-uppsteypa-mars-2021.jpg)
Uppsteypu Húss íslenskunnar er lokið og hornsteinn verður lagður að húsinu í apríl. Framkvæmdir hafa gengið vel og eru á undan áætlun. Lokun hússins er á lokametrunum og lagnavinna og bygging innviða hússins hafin.
Verkís sá um verkfræðihönnun hússins og sinnir nú aðstoð á framkvæmdatíma verksins.
Um 50 starfsmenn hafa að jafnaði verið á svæðinu frá upphafi framkvæmda en nú mun þeim fjölga talsvert.