Velheppnaður Morgunverðarfundur um Holmen
Verkís og Arkís arkitektar hönnuðu bygginguna frá A – Ö og höfðu fyrirlesarar því frá mörgu að segja. Fimm erindi voru flutt af starfsfólki Verkís og eitt af Aðalsteini Snorrasyni, arkitekt og einum af eigendum Arkís. Rúmlega fjörutíu manns sóttu fundinn og þótti hann heppnast vel.
Stöð 2 mætti á fundinn og ræddi við Eirík Stein Búason, byggingarverkfræðing og Aðalstein. Einnig fékk fréttamaðurinn að skyggnast inn í tölvugert líkan af Holmen með hjálp sýndarveruleika. Hér má sjá fréttina.
Sundhöllin Holmen í Asker í Noregi var opnuð síðastliðið sumar og hefur vakið mikla athygli. Umhverfisvæn orka er í lykilhlutverki en nærri helmingur orkunnar sem notuð er við rekstur Holmen er aflað á lóð hennar, meðal annars með varmadælum.
Frétt Verkís: Verkís heldur morgunverðarfund um sundhöllina Holmen
