19/05/2025

Verkís á Samorkuþingi 2025

© www.samorkuthing.is
Samorkuþingið fer fram í Hofi á Akureyri

Verkís tekur þátt í Samorkuþingi sem fram fer í Hofi á Akureyri dagana 22. – 23. maí nk. Verkís mun taka þátt í vöru- og þjónustusýningu þingsins með bás, ásamt sérfræðingum Verkís á sviði orku- og veitumála munu standa vaktina báða dagana.

Fjórir fulltrúar Verkís verða með erindi á þinginu í ár:

  • Sigurður Grétar Sigmarsson, vatnsauðlindaverkfræðingur og viðskiptastjóri veitumála mun fjalla um Rekstur og viðhald blágrænna ofanvatnslausna.
  • Bryndís Hallsdóttir, umhverfisverkfræðingur og Sigurður Kristinn Jóhannesson, orkuverkfræðingur munu halda fyrirlestur um Fráveituþrýstikerfi – Innleiðing á lausnum frá Noregi. Bryndís og Sigurður eru í veituhópu Verkís á Samgöngu og umhverfissviði.
  • Hörn Hrafnsdóttir, vatnsauðlindaverkfræðingur á sviði Orku og iðnaðar mun flytja erindi um Hraunhermanir sem vinnutól til að meta nauðsynlegar aðgerðir til verndun innviða. Hörn er í hópi þeirra sem hafa unnið að hönnun varnargarða og vörnum innviða á Reykjanesi.

Sjá nánar í dagskrá hér

Samorkuþing er stærsta ráðstefna í orku- og veitumálum á Íslandi. Samorkuþing er haldið á þriggja ára fresti þar sem fjallað er um viðfangsefni orku- og veitufyrirtækja. Þar gefst tækifæri til tengslamyndunar og fræðslu, ásamt því að þátttakendur fá að miðla sinni sérfræðiþekkingu.

Nánar um þingið, fyrirlestra og sýnendur má finna á vefsíðu þingsins.

Heimsmarkmið

© www.samorkuthing.is
Samorkuþingið fer fram í Hofi á Akureyri