07/02/2024

Verkís einn af aðalstyrktaraðilum Hönnunarkeppni HÍ 2024

Hönnunarkeppni Háskóla Íslands var haldin í 32. skipti þann 3.febrúar síðastliðinn í Hörpu. Keppnin er skipulögð af nemendum í iðnaðarverkfræði og vélaverkfræði við Háskóla Íslands og er hluti af dagskrá UT messunar.

Í ár er Verkís einn af aðalstyrktaraðilum keppninnar og átti Bjarni Steinar Gunnarsson, vélaverkfræðingur á Orku- og iðnaðarsviði Verkís, sæti í dómnefnd keppninnar.

Bjarni Steinar Gunnarsson, lengst til hægri, að störfum í dómnefnd

Keppnin gengur út á að búa til tæki sem leysir stutta braut með þrautum. Tækið verður að keyra af sjálfsdáðum og má ekki vera stjórnað af lifandi veru.
Keppnin var opin öllum og var vel mætt á þennan skemmtilega viðburð.

Facebook síða keppninnar: Hönnunarkeppni HÍ