21/05/2025

Verkís er Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2025 – annað árið í röð

Fulltrúar Verkís tóku á móti viðurkenningunni í Hörpu

Viðurkenning sem endurspeglar sterka liðsheild og jákvætt starfsumhverfi

Verkís hlaut viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2025 þegar niðurstöður könnunarinnar Fyrirtæki ársins voru kynntar með hátíðlegum hætti í Hörpu þann 15. maí. Þetta er annað árið í röð sem Verkís fær þessa mikilvægu viðurkenningu, sem byggir alfarið á viðhorfi starfsfólks og gefur dýrmæt innsýn í starfsumhverfið okkar. 

Stærsta vinnumarkaðskönnun landsins

Fyrirtæki ársins er árleg könnun sem VR stendur fyrir og er hún sú stærsta sinnar tegundar á Íslandi. Í ár tóku 157 fyrirtæki þátt í rannsókninni og voru það aðeins þau fyrirtæki sem tryggðu öllum sínum starfsmönnum þátttökurétt og náðu tilskyldri svarhlutfallsþátttöku sem komust í úrtak fyrir val á Fyrirmyndarfyrirtæki.

Þeir fimmtán efstu í hverjum stærðarflokki eru heiðraðir með viðurkenningunni Fyrirmyndarfyrirtæki VR, þar sem metið er viðhorf starfsfólks til lykilþátta á vinnustaðnum, þar á meðal:

  • Stjórnun og forysta
  • Launakjör og fríðindi
  • Starfsandi og liðsheild
  • Jafnrétti og fjölbreytileiki
  • Starfsánægja og vellíðan

Þakklæti til starfsfólks

Við hjá Verkís erum afar stolt og þakklát fyrir þessa viðurkenningu. Hún er ekki aðeins staðfesting á góðum starfsanda, heldur líka á því trausta og opna vinnuumhverfi sem við leggjum okkur öll fram um að skapa og viðhalda. Þetta er árangur sem hefði aldrei náðst nema með öflugri samvinnu og þátttöku starfsfólks á öllum sviðum fyrirtækisins.

Við lítum þessa viðurkenningu sem innblástur til að halda áfram að efla og bæta starfsumhverfið enn frekar. Fyrirmyndarfyrirtæki verða ekki til af sjálfu sér – þau verða til þegar fólk vinnur saman með frumkvæði, heilindum og metnaði að leiðarljósi.

 

 

Fulltrúar Verkís tóku á móti viðurkenningunni í Hörpu