03/03/2021

Verkís hannar Bodø sundhöllina í Noregi

Bodø sundhöll
Bodø sundhöll

Verkís vinnur að fullnaðarhönnun og gerð útboðsgagna fyrir Bodø sundhöllina í Noregi. Um er að ræða 4.200 m² sundhöll á tveimur hæðum, viðbyggingu við núverandi sundhöll sem nefnist Norlandsbadet. Verkefnið er nýlega farið í útboð og til stendur að hefja framkvæmdir í apríl.

Verkís hefur áður unnið frum- og forhönnun vegna sundhallarinnar. Bodø sundhöllin er framsækin, umhverfisvæn og nútímaleg sundhöll með 8 brauta 25m keppnislaug (25x21m). Fyrir utan keppnislaugina eru í sundhöllinni áhorfendastúka, búningsklefar, veitingaaðstaða og aðstaða til funda o.fl. fyrir starfsfólk og sundfélag staðarins.

Hlutverk Verkís er almenn verkefnisstjórn, gerð kostnaðaráætlana, hönnun burðarvirkja, fráveitu- hreinlætis- og hitakerfa, sundlaugakerfa, loftræsikerfa, raf- og smáspennukerfa, lýsingar, stýrikerfa, brunahönnun, hljóðvistarhönnun, orkuöflun, orkureikningar, jarðtækni og leiðir BIM úrvinnslu verkefnisins hjá Verkís og norskum samstarfsaðilum sem að verkefninu koma.

Verkefnið er m.a. unnið í samvinnu við Terje Grønmo arkitekta og dótturfyrirtæki Verkís, OPV Consulting í Noregi.

Bodø sundhöll
Bodø sundhöll