Verkís heldur morgunverðarfund um sundhöllina Holmen
Dagskrá
Kl. 8.30 Húsið opnar Morgunmatur í boði Verkís / Sýndarveruleiki
Kl. 9.00 Íslensk hönnun í Noregi frá A – Ö. Flosi Sigurðsson, viðskiptastjóri, Verkís
Kl. 9.20 „Þú stekkur aldrei lengra en þú ætlar þér“ Aðalsteinn Snorrason, arkitekt, ARKÍS
Einstakur arkitektúr byggður á sérkennum verkefnisinsKl. 9.40 Frá hugmynd að veruleika Eiríkur St. Búason, byggingarverkfræðingur,., Verkís
Kl. 10.00 Kaffihlé Kaffi og veitingar / Sýndarveruleiki Kl. 10.20 Umhverfisáherslur og líftímagreining Elín Vignisdóttir, landfræðingur, VerkísKl. 10.40 Frá tvívídd til BIM Davíð Friðgeirsson, BIM ráðgjafi og byggingafr., VerkísKl. 11.00 Varmaorkuframleiðsla og nýting Kristján Þ. Hálfdánarson, véltæknifræðingur, VerkísKl. 11.15 Lokaorð og umræður Eiríkur Steinn Búason, byggingarverkfræðingur, Verkís
Fundarstjóri: Eiríkur K. Þorbjörnsson, rafmagnstæknifræðingur, Verkís
Sundhöllin Holmen í Asker í Noregi var opnuð síðastliðið sumar og hefur vakið mikla athygli. Sundhöllin var hönnuð af Verkís verkfræðistofu og ARKÍS arkitektum. Umhverfisvæn orka er í lykilhlutverki en nærri helmingur orkunnar sem notuð er við rekstur Holmen er aflað á lóð hennar, meðal annars með varmadælum.
Holmen var valin bygging ársins 2017 í Noregi, tilnefnd til norsku Varmadæluverðlaunanna 2018 og valin eitt af fimmtíu fyrirmyndarverkefnum FutureBuilt í Noregi. Sundhöllin er talin leggja ný viðmið um hönnun sundhalla í Noregi hvað varðar orkunotkun og vistvæna hönnun.
Aðgangur er ókeypis en gestir eru beðnir um að senda skráningu á netfangið kynningarmal@verkis.is.
