05/03/2024

Verkís í Georgíu með forseta Íslands og ráðherra

Vatnsaflsvirkjunin Akhalkalaki í Georgíu

Sveinn Ingi Ólafsson er fulltrúi Verkís í viðskiptasendinefnd sem send var frá Íslandi í gær til Georgíu. Ásamt Sveini í nefndinni er Volodymyr Pryvizentsev, tengiliður Verkís í Georgíu, forseti Íslands, Guðni Th. Jó­hann­es­son,  Guðlaug­ur Þór Þórðar­son, um­hverf­is- orku og lofts­lags­ráðherra, Nótt Thor­berg, for­stöðumaður Græn­vangs, og sendi­nefnd full­trúa úr viðskipta­líf­inu.Nefndin verður undir merkjum Green by Iceland, sem miðar að aukinni vitund um sjálfbæra nýtingu auðlinda á Íslandi og kynningu á íslenskum grænum lausnum erlendis.

Sveinn Ingi Ólafsson

Þessi heimsókn er fyrsta af sinni tegund til Georgíu og markmiðið er að kanna möguleika á aukinni samvinnu í uppbyggingu endurnýjanlegrar orku, með áherslu á jarðvarma, vatnsaflsvirkjana og loftslagslausnir. Með þessari áherslu á samvinnu á sviði loftslagsmála og grænna lausna er markmiðið einnig að styrkja tengsl milli landanna, 

Á dagskránni eru tvíhliða fundir, viðskiptaþing og heimsóknir á vatnsaflsvirkjunum Landsvirkjun og Verkís. Heimsóknin hófst formlega í dag með móttökuathöfn í Tbilisi og endar á kvöldi fimmtudagsins 7. mars.

Heimsmarkmið

Vatnsaflsvirkjunin Akhalkalaki í Georgíu