16/11/2020
Verkís kemst áfram í forvali um iðn- og vélskóla á Grænlandi
KHR/Verkís/S&M Verkis voru með næst hæstu einkunn af teymunum sex. Við mat á umsóknum var litið til skipulags, ferilskráa og reynslu.
Í umsögn um þátttöku Verkís, S&M Verkis og KHR kom meðal annars fram að litið hefði verið til þess að umsækjendur væru með mikla reynslu hvað varðar hönnun á skólum, hönnun á stærri verkefnum og flækjustig framkvæmda á Grænlandi.
Verkkaupi er ríkisstjórn Grænlands.
Þessa dagana vinnur Verkís að verkfræðihönnun stærsta skóla Grænlands og er það verkefni unnið með S&M Verkis og KHR í Danmörku.
Frétt Verkís: Verkís sér um verkfræðihönnun vegna stærsta skóla Grænlands
