08/05/2018

Verkís fær útboðsgögn vegna fullnaðarhönnunar nýs rannsóknarhúss

Eitt teymanna stendur saman af fyrirtækjunum Verkís og TBL architects (Tark, Batteríið og Landslag). 

Rannsóknarhúsið er hluti af heildaruppbyggingu Nýs Landspítala við Hringbraut. Aðrar byggingar eru meðferðarkjarninn, sem er stærsta byggingin í uppbyggingu Hringbrautarverkefnisins, nýtt sjúkrahótel, sem verður tekið í notkun á árinu og bílastæða-, tækni- og skrifstofuhús. 

Í rannsóknarhúsinu Nýs Landspítala mun öll rannsóknastarfsemi spítalans sameinast á einn stað, auk þess sem Blóðbankinn mun flytja starfsemi sína í húsið. 

Opnun tilboða verður hjá Ríkiskaupum 11. júní nk. 

Frétt mbl.is: Fullnaðarhönnun rannsóknahúss í sumar

Rannsóknarhús
nlsh05-per-fra-nedri-gotu