31/10/2019

Verkís styrkir Landsbjörg með kaupum á Neyðarkallinum

Í dag klæðir starfsfólk Verkís, sem er í björgunarsveitum Landsbjargar, sig í úlpurnar og selur Neyðarkallinn innan fyrirtækisins. 

Samhliða því átaki leggur Verkís málefninu lið með fjárframlagi og vill þannig leggja sitt af mörkum til samfélagsins.

Salan á Neyðarkallinum er ein stærsta fjáröflun Landsbjargar og í ár stendur salan yfir um allt land dagana 31. október til og með 3. nóvember. 

Á myndinni sem fylgir fréttinni má sjá björgunarfólkið okkar afhenda Hlíf Ísaksdóttur, byggingarverkfræðingi og stjórnarformanni Verkís, stóra útgáfu af Neyðarkallinum sem þakklætisvott fyrir stuðninginn. 

Neyðarkallinn
img_0040