01/11/2018
Verkís styrkir Landsbjörg með kaupum á neyðarkallinum
Í dag klæðir starfsfólk Verkís, sem er í björgunarsveitum Landsbjargar, sig í úlpurnar og selur neyðarkallinn innan fyrirtækisins.
Salan á neyðarkallinum er ein stærsta fjáröflun Landsbjargar og í ár stendur salan yfir um allt land dagana 1. nóvember til og með 3. nóvember. Í ár er neyðarkallinn úr fortíð.
