Verkís tekur þátt í IGC 2018
Þetta er fjórða skipti sem ráðstefnan er haldin hér á landi. Á bás Verkís verður hægt að fræðast um verkefni fyrirtækisins á sviði jarðvarma, auk þess sem gestum verður boðið upp á að skoða sig um í orkuveri 6 í Svartsengi með sýndarveruleika.
Davíð Ó. Benediktsson, vélaverkfræðingur á orkusviði Verkís, mun flytja erindi fyrir hönd Verkís sem ber yfirskriftina Optimization of existing systems. Erindið verður flutt fimmtudaginn 26. apríl á málstofu í Kaldalóni.
Um erindi Davíðs:
Verkís hefur unnið að hönnun jarðvarmaorkuvera á íslandi frá upphafi. Erindið gefur yfirlit yfir nokkur verkefni þar sem verkís hefur unnið að hönnun verkefna sem snúa að bestun eða endurbætur orkuvera í rekstri.
Verkís hefur unnið að endurbótum á gassogskerfum í Kröflu og Reykjanesvirkjun þar sem breytingum var auðveldlega við komið og endurgreiðslutími breytinganna var mjög stuttur.
Verkís hefur einnig tekið þátt í hönnun jarðvarmaversins í Svartsengi þar sem hönnun orkuvers 6 miðaðist við að besta nýtingu á auðlindinni.
