28/05/2019

Verkís tekur þátt í samstarfsvettvangi um loftslagsmál og grænar lausnir

Samstarfsvettvangur um loftslagsmál og grænar lausnir
Stjórnarráð Íslands: Sveinn Ingi Ólafsson, framkvæmdastjóri Verkís, undirritaði samkomulagið fyrir hönd fyrirtækisins. Hann er lengst til vinstri á myndinni. 

Samkomulag um samstarfsvettvang stjórnvalda og stórra aðila úr atvinnulífinu um loftlagsmál og grænar lausnir var undirritað í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í dag. Verkís er einn af stofnaðilunum.

Forsætisráðuneytið, umhverfis- og auðlindaráðuneytið, utanríkisráðuneytið og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið; Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Orkuklasinn, Viðskiptaráð Íslands, Bændasamtök Íslands, Íslandsstofa, auk fjölda fyrirtækja standa að samstarfsvettvangnum.

Markmið vettvangsins er að bæta árangur Íslands í loftslagsmálum og miðla fjölbreyttu framlagi landsins á því sviði. Enn fremur að stjórnvöld og atvinnulíf vinni í sameiningu að metnaðarfullum aðgerðum í loftslagsmálum í samræmi við markmið stjórnvalda, þar með talið kolefnishlutleysi árið 2040.

Helstu verkefni vettvangsins verða:

  • Kynning á fjölbreyttu framlagi Íslands til loftslagsmála til þessa sem og markmið og stefnu til framtíðar.
  • Að tryggja virkt samstarf stjórnvalda og atvinnulífs um aðgerðir í loftslagsmálum, þar með talið um kolefnishlutleysi árið 2040.
  • Stuðningur við markaðs- og viðskiptaþróunarstarf fyrirtækja tengt loftslagsmálum. Íslenskum lausnum varðandi nýtingu endurnýjanlegrar orku verður meðal annars miðlað og unnið að auknum útflutningi vöru, hugvits og lausna sem byggja á íslenskri orkuþekkingu og grænum lausnum.

Fyrr í þessum mánuði skilaði Verkís í fyrsta skipti samfélagsskýrslu vegna sáttmála SÞ um samfélagsábyrgð (e. UN Global Compact). Samhliða skilunum opnuðum við nýja undirsíðu á heimasíðu Verkís þar sem er að finna ýmsa tölfræði sem lýsir samfélagslegri ábyrgð Verkís.

Verkís skrifaði undir sáttmálann fyrir ári síðan. Með þátttökunni skuldbindur Verkís sig til að skila inn árlegri skýrslu og gera grein fyrir því hvernig grundvallarmarkmið sáttmálans hafa verið þættuð inn í alla starfsemi Verkís.

Samstarfsvettvangur um loftslagsmál og grænar lausnir
Stjórnarráð Íslands: Sveinn Ingi Ólafsson, framkvæmdastjóri Verkís, undirritaði samkomulagið fyrir hönd fyrirtækisins. Hann er lengst til vinstri á myndinni.